Fara á efnissvæði

Þriðjudaginn 1. september tók Eimskip á móti félagskonum úr Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA) á opnunarviðburði félagsins fyrir starfsárið 2026-2027. Um 200 konur mættu í höfuðstöðvar Eimskips við Sundabakka og fengu tækifæri til að kynnast fyrirtækinu, fólkinu á bak við þjónustuna og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer á hafnarsvæðinu á hverjum degi.

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, setti viðburðinn formlega og í kjölfarið sagði Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, frá vegferð Eimskips við að byggja upp sterka fyrirtækjamenningu þvert á lönd og menningarheima og hvernig traust, samvinna og fjölbreytileiki eru lykilþættir í að skapa öflugt lið sem nær árangri saman.

Á dagskránni voru einnig líflegar umræður þar sem Ingibjörg Salome Sigurðardóttir, formaður FKA, ræddi við Elísu Dögg Björnsdóttur, framkvæmdastjóra Innanlandssviðs Eimskips og Bergljótu Soffíu Benediktsdóttur, forstöðumann aksturs og svæðisskrifstofa. Þær deildu reynslu sinni af störfum innan Eimskips og þeim fjölbreyttu tækifærum sem bjóðast innan fyrirtækisins.

Eftir dagskrána fengu félagskonur að skoða höfuðstöðvar Eimskips og fara í rútuferð með leiðsögn um hafnarsvæðið í Sundahöfn. Þar fengu þær innsýn í umfang og mikilvægi flutninga- og hafnarstarfsemi fyrir íslenskt samfélag og atvinnulíf.

Heimsóknin var frábært tækifæri til að efla tengsl, miðla þekkingu og veita innsýn í starfsemi Eimskips. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á fjölbreytileika, liðsheild og öflugt samstarf og var ánægjulegt að fá að deila þeirri vegferð með félagskonum FKA.

Myndir: FKA / Silla Páls (Mirror Rose)

Myndir Silla Páls - FKA-110.jpg