Fara á efnissvæði

Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjórðungs

Krefjandi fjórðungur en jákvæð teikn í rekstri.

Tekjur námu 191,7 milljónum evra og lækkuðu um 9,6 milljónir evra eða 4,8% samanborið við sama tímabil árið áður. Þróun tekna og afkomu var mismunandi eftir rekstrarþáttum.

  • Magn í siglingakerfinu lækkaði um 4,5% á fjórðungnum en tekjur lækkuðu einungis um 1,4%. Án áhrifa framleiðsluskerðingar hjá Norðuráli og lokunar PCC á Bakka jókst flutningsmagn í kerfinu milli tímabila, drifið áfram af sterkum innflutningi til Íslands og aukningu á útflutningi sjávarafurða og laxi frá Íslandi og Færeyjum.
  • Tekjur í alþjóðlegri flutningsmiðlun lækkuðu um 12,7%, þrátt fyrir 6,3% aukningu í magni, sem skýrist af verulegri lækkun alþjóðlegra flutningsverða en alþjóðleg flutningsvísitala Drewry lækkaði að meðaltali um 32% milli tímabila.
  • Önnur flutningstengd starfsemi skilaði ágætum árangri og tekjuvexti upp á 1,3% með áframhaldandi auknum umsvifum í innanlandsflutningum en á móti minnkaði magn í vöruhúsum og kæligeymslum á tímabilinu.

Rekstrarkostnaður nam 182,5 milljónum evra og lækkaði um 3,5 milljónir evra eða 1,9% milli ára. Lækkunina má einkum rekja til töluvert lægri alþjóðlegra flutningsverða, minni olíunotkunar og annarra mótvægisaðgerða sem miða að því að styrkja rekstur félagsins og bæta afkomu á komandi fjórðungum. Þrátt fyrir kjarasamningsbundnar launahækkanir jókst launakostnaður einungis um 0,2 milljónir evra eða 0,4% sem skýrist af fækkun stöðugilda.

EBITDA fjórðungsins nam 9,3 milljónum evra, samanborið við 15,3 milljónir evra á sama tímabili 2025, sem er lækkun um 6,0 milljónir evra. Helstu ástæður lakari afkomu voru framleiðsluskerðingar hjá Norðuráli og lokunar PCC á Bakka, hærri kostnaður vegna truflana í siglingakerfinu, atvika tengd skipunum, hækkandi olíuverðs á lokamánuði fjórðungsins og lægri framlegð í alþjóðlegu flutningsmiðluninni vegna töluverðar lækkunar á alþjóðlegum flutningsverðum.

Á síðari hluta árs 2025 var ráðist í umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir, meðal annars með fækkun í skipaflota félagsins, breytingum á siglingakerfi, fækkun stöðugilda og aðhaldi í fjárfestingum. Áætlað er að áhrif aðgerða sem þegar hafa verið innleiddar nemi um 14 milljónum evra á ársgrundvelli, þar af um 3,2 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi sem skiluðu jákvæðum EBITDA áhrifum upp á 2,7 milljónir evra.

Lausafjárstaða var sterk í lok tímabilsins þrátt fyrir lægra sjóðstreymi frá rekstri miðað við sama tímabil í fyrra.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri

„Afkoma Eimskips á fyrsta ársfjórðungi 2026 mótaðist af áframhaldandi krefjandi ytri aðstæðum, þar sem þrýstingur á tekjur og truflanir í rekstri höfðu áhrif á niðurstöður fjórðungsins. EBITDA á fjórðungnum nam 9,3 milljónum evra og lækkaði um 6,0 milljónir evra frá sama tíma á fyrra ári. Á undanförnum árum hefur kostnaður félagsins hækkað mikið, einkum í rekstri siglingakerfisins, með hærri verðbólgu, aðföngum og launahækkunum án þess að tekjuvöxtur hafi fylgt að fullu.

Þrátt fyrir lakari afkomu á fjórðungnum er mikilvægt að undirstrika að félagið er að skila árangri í þeim mótvægis- og hagræðingaraðgerðum sem ráðist var í á síðari hluta síðasta árs. Áætluð árleg áhrif þeirra aðgerða nema um 14 milljónum evra og hluti þeirra, 3,2 milljónir evra, skilaði sér með jákvæðum hætti á fyrsta ársfjórðungi með 2,7 milljóna evra jákvæðum áhrifum á EBITDA. Hluti af árangri hagræðingaraðgerða má sjá í því að launahækkanir voru 0,4% milli ára þrátt fyrir töluverðar almennar launahækkanir á tímabilinu.

Reiknað hafði verið með sterkari niðurstöðu á fjórðungnum í ljósi þessara aðgerða, en hærri kostnaður vegna truflana í siglingakerfinu, óhappa í skiparekstrinum og hækkandi olíuverðs vó þyngra en gert var ráð fyrir. Í þessu samhengi lítum við á fjórðunginn sem varnarsigur í krefjandi aðstæðum og mikilvægan grunn lagðan að bættum rekstri. Flutningsmagn jókst í kerfinu milli ára þegar horft er fram hjá magnsamdrætti sem rekja má til framleiðsluskerðingar hjá Norðuráli og lokunar PCC á Bakka og var það drifið áfram af sterkum innflutningi til Íslands og aukningar á útflutningi sjávarafurða og laxi frá Íslandi og Færeyjum.

Í alþjóðlega umhverfinu, sem einkennist af stöðugum breytingum, hefur Eimskip ítrekað sýnt sveigjanleika og styrk til að bregðast við og aðlagast breyttum aðstæðum. Við erum áfram einbeitt í að straumlínulaga reksturinn en á sama tíma missum við ekki sjónar á mikilvægi þess að fjárfesta í innviðum félagsins og starfsfólki okkar ásamt því að einbeita okkur að því að veita viðskiptavinum okkar góða og áreiðanlega þjónustu.  

Viðræður eru í gangi milli Samtaka atvinnulífsins og Sjómannafélags Íslands (SÍ) um gerð kjarasamnings við háseta á þremur eigin skipum félagsins og hluta hafnaverkafólks í Sundahöfn en um 40% starfsfólks í hafnarþjónustu eru í SÍ. Viðræður standa yfir og vonir standa til þess að samningar náist án þess að til vinnustöðvunar komi síðar í mánuðinum. Félagið nálgast viðræðurnar með ábyrgum hætti en mikilvægt er að ekki sé samið umfram kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á þessum krefjandi tímum. Félagið hefur undirbúið viðbragðsáætlun komi til verkfalls.

Heilt yfir erum við nokkuð bjartsýn fyrir komandi mánuði, enda sjáum við að hefðbundnar árstíðasveiflur í rekstri Eimskips eru að koma fram, þar sem annar og þriðji ársfjórðungur jafnan eru umsvifamestu tímabilin í starfseminni.“

Kynningarfundur 6. maí 2026

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri, og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 6. maí nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundurinn hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið investors@eimskip.com.

Frekari upplýsingar

Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, sími: 844 4776, netfang: investors@eimskip.com

Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími 844 4752, netfang: investors@eimskip.com

Til athugunar fyrir fjárfesta

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.