Fara á efnissvæði

Alþjóðleg bilun hjá Microsoft veldur því að Outlook liggur niðri hjá Eimskip líkt og mörgum öðrum fyrirtækjum. Bilunin veldur röskunum á tölvupóstum. Tölvupóstar til Eimskips gætu því borist seint eða ekki. Bilunin gæti einnig valdið lítils háttar truflunum á þjónustuvefnum MyEimskip.

Ekki er vitað hvenær viðgerð lýkur.

Hvernig næst í okkur:

  • Hringdu eða sendu sms á tengilið þinn hjá Eimskip.

  • Náist ekki í tengilið er hægt að hafa samband við afgreiðslu Eimskips á Íslandi í síma 525 7000.

  • TEAMS skilaboð virka í einhverjum tilvikum, með röskunum þó.

  • Spjallið á heimasíðunni www.eimskip.is

Þjónustutengiliðir hjá Eimskip

Þjónustudeild innflutningur 525 7250

Þjónustudeild útflutningur 525 7240

Tolladeild 525 7510

Heimakstur 525 7750

Innanlandssvið 525 7700

TVG-Zimsen 560 2777

Upplýsingar um tengiliði á erlendum skrifstofum Eimskips má nálgast hér:

Offices - Eimskip

Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum og þökkum skilninginn.

Viðskiptavinum verður haldið upplýstum um stöðuna eftir því sem málum vindur fram.