Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Innanlandssviðið er víðfeðmt svið og tilheyra því innanlandsflutningar og vörudreifing, vöruhúsa- og frystigeymslustarfsemi ásamt fasteignaumsjón. Á sviðinu starfa tæplega 400 starfsmenn á 16 starfsstöðvum víðsvegar um landið.
Elísa þekkir vel til Eimskips en hún hefur starfað hjá dótturfélagi þess, TVG-Zimsen, frá árinu 2006 þegar hún hóf störf sem fulltrúi í söludeild. Á árunum 2010-2013 leiddi hún deild sértækra lausna á sviði sjóflutninga og þá starfaði hún sem deildarstjóri sjó- og flugdeildar á árunum 2013-2020. Frá árinu 2020 hefur Elísa gegnt starfi framkvæmdastjóra TVG-Zimsen. Elísa er stjórnarformaður North Atlantic Agency, samstarfsvettvangs umboðsmennsku- og flutningafyrirtækja í Norður-Atlantshafi og situr í stjórnum Eimskip Greenland og Gáru ehf., dótturfélaga Eimskips.
Elísa er með B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í hagfræði með áherslu á fjármálahagfræði og hagrannsóknir frá University of Sydney í Ástralíu. Elísa er gift Jannis Moraitis og á þrjú börn, auk þriggja stjúpbarna.
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips:
„Ég er ánægður með að Elísa hafi sóst eftir starfi framkvæmdastjóra Innanlandssviðs og veit að þekking hennar og reynsla á starfsemi félagsins mun nýtast vel í að byggja á góðum grunni og þróa Innanlandssviðið enn frekar í átt að sölu- og þjónustudrifnari einingu. Þá verður áfram unnið með styrkleika sviðsins sem er hagkvæmur og skilvirkur rekstur. Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar Elísu, sem hún hefur sýnt sem framkvæmdastjóri TVG-Zimsen síðustu sex ár, munu skipta máli á sviði sem telur hátt í 400 starfsfólk og er með jafn fjölbreyttan rekstur og raun ber vitni. Fram undan eru spennandi verkefni á innanlandssviðinu og ég hlakka til að vinna með Elísu í nýju hlutverki.“
Elísa Dögg segir:
„Ég hlakka til að taka við nýju hlutverki og er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt. Eimskip býr yfir öflugri starfsemi og framúrskarandi starfsfólki um allt land. Það verður bæði ánægjulegt og spennandi að takast á við fjölbreytt verkefni hjá Eimskip Innanlands og kynnast starfseminni enn betur. Ég hlakka til að byggja áfram á þeim góða grunni sem lagður hefur verið, styrkja enn frekar sölu og þjónustu við viðskiptavini og styðja við áframhaldandi vöxt og framþróun félagsins.“
Elísa tekur formlega við starfinu af fráfarandi framkvæmdastjóra, Eddu Rut Björnsdóttur, á næstu vikum og verður hún Elísu innan handar á því tímabili.