Eimskip tekur þátt í sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global sem fer fram í Barcelona í vikunni. Sýningin hófst í gær, þriðjudag en undirbúningur hefur staðið yfir undanfarna mánuði.
„Það var mjög gestkvæmt á básnum okkar fyrsta daginn, sem er í takt við hvernig þetta hefur verið hjá okkur í Barcelona síðustu ár. Við höfum byggt upp traust viðskiptasambönd í sjávarútvegi sem við erum stolt af, bæði á Íslandi og um allan heim. Sýningin skapar frábær tækifæri til að hitta viðskiptavini og samstarfsaðila til að styrkja tengslin enn frekar. Við leggjum mikinn metnað og frumkvæði í að þróa þjónustu og lausnir í takt við þarfir viðskiptavina okkar“ segir Björn Einarsson framkvæmdastjóri sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip.
Á sýningunni er starfsfólk Eimskips frá skrifstofum í 10 löndum, sem undirstrikar alþjóðlega starfsemi félagsins, sem starfar í 20 löndum og með öflugt tengslanet víða um heim. Félagið hélt venju samkvæmt stórt viðskiptavinahóf að kvöldi fyrsta sýningardags, þar sem aðsókn var mjög góð. „Við þökkum kærlega fyrir komuna í viðskiptavinahófið og hlökkum til að taka á móti enn fleiri gestum á básnum í dag og á morgun“ bætir Björn við að lokum.