Framkvæmdir við nýja dreifingar- og þjónustumiðstöð Eimskips að Breiðumýri 8 á Selfossi eru hafnar. Áformað er að flytja starfsemina úr núverandi húsnæði við Háheiði á haustmánuðum 2027. Nýja stöðin er mikilvæg fjárfesting í framtíð innviða á Suðurlandi og er hönnuð til að mæta vexti samfélagsins, styrkja þjónustu við viðskiptavini og skapa starfsfólki betri og öruggari vinnuaðstöðu.
Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi og byggir á ítarlegri greiningu á þörfum viðskiptavina og þróun atvinnulífs á þjónustusvæði stöðvarinnar. Um er að ræða 1.290 fermetra dreifingarmiðstöð á rúmlega 10.000 fermetra lóð sem býður upp á verulegt svigrúm til frekari uppbyggingar og stækkunar í takt við vaxandi umsvif á Suðurlandi.
Húsnæðið verður búið nýjustu lausnum fyrir vörumeðhöndlun og geymslu kæli- og frystivöru. Markmið framkvæmdarinnar er að efla afhendingaröryggi, tryggja örugga og skilvirka vörumeðhöndlun og skapa aðstöðu sem styður við áframhaldandi vöxt og aukin þjónustugæði á Suðurlandi.
STARFSEMIN HEFUR VAXIÐ LANGT UMFRAM AFKASTAGETU NÚVERANDI HÚSNÆÐIS
Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eimskips á Suðurlandi samhliða fjölgun íbúa, aukinni atvinnustarfsemi og vaxandi umsvifum í ferðaþjónustu. Frá því að Eimskip hóf starfsemi við Háheiði árið 2011 hefur íbúafjöldi á þjónustusvæði stöðvarinnar aukist um 51%, eða um rúmlega 9.300 einstaklinga.
Dreifingarmiðstöð Eimskips á Selfossi þjónar í dag Árnes- og Rangárvallasýslum, frá Selvogi í vestri að Markarfljóti í austri. Á svæðinu búa tæplega 28.000 manns auk þess sem þar eru þúsundir sumarhúsa og margir af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins. Á háannatíma getur fjöldi fólks á svæðinu margfaldast og aukið enn frekar kröfur um öfluga flutninga- og dreifingarþjónustu.
Hjá Eimskip á Selfossi starfa 15 einstaklingar búsettir í Árnes- og Rangárvallasýslum. Starfsstöðin gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu auk þess að sinna daglega þörfum almennings fyrir flutninga og pakkaþjónustu, sem hefur vaxið hratt samhliða aukinni netverslun.
SUNNLENSKT VERKEFNI OG SUNNLENSKT HUGVIT
Framkvæmdin er að mestu unnin af sunnlenskum fyrirtækjum. Húsið er hannað af Eflu á Selfossi og Landstólpi í Gunnbjarnarholti annast byggingu þess. Þá koma fjölmargir sunnlenskir verktakar að verkefninu, meðal annars á sviði raflagna, pípulagna og jarðvinnu.
Hönnun byggingarinnar byggir jafnframt á reynslu og þekkingu starfsfólks Eimskips á Suðurlandi og þeirri sýn að skapa aðstöðu sem mætir bæði þörfum dagsins í dag og framtíðarinnar.
„Árborg hefur vaxið hratt á undanförnum árum og áframhaldandi uppbygging atvinnulífs er ein af forsendum þess að samfélagið geti þróast með sjálfbærum hætti. Það er fagnaðarefni að sjá fyrirtæki eins og Eimskip fjárfesta til framtíðar á svæðinu og styrkja um leið bæði þjónustuinnviði og atvinnulíf sveitarfélagsins,“ sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar við þetta tilefni.
SJÁLFBÆRNI OG SKILVIRKNI AÐ LEIÐARLJÓSI
Staðsetning dreifingarmiðstöðvarinnar við Breiðumýri var valin með sjálfbærni, öryggi og hagkvæmni að leiðarljósi. Með tilkomu nýrrar statðsetningar styttist akstursleið frá höfuðborgarsvæðinu um rúmlega átta kílómetra, sem dregur úr eldsneytisnotkun, minnkar losun og stuðlar að skilvirkari dreifingu vöru.
Ný staðsetning mun jafnframt draga úr þungaflutningum um þéttbýli Selfoss og bæta umferðaröryggi. Með góðri tengingu við helstu samgönguæðar á svæðinu skapast betri forsendur fyrir hraðari og áreiðanlegri þjónustu við viðskiptavini um allt Suðurland.
FJÁRFESTING SEM BYGGIR UNDIR VÖXT SUÐURLANDS
Með byggingu nýrrar dreifingar- og þjónustumiðstöðvar á Selfossi styrkir Eimskip innviði sína á Suðurlandi og undirstrikar langtímaskuldbindingu fyrirtækisins við svæðið. Verkefnið mun bæta þjónustu við viðskiptavini, skapa starfsfólki öruggari og betri vinnuaðstöðu og leggja grunn að áframhaldandi vexti og uppbyggingu á komandi árum.
„Suðurland hefur verið eitt öflugasta vaxtarsvæði landsins á undanförnum árum hvað varðar innanlandsflutninga og við sjáum áframhaldandi tækifæri til vaxtar á komandi árum. Með þessari fjárfestingu erum við að byggja upp aðstöðu sem mætir kröfum framtíðarinnar og gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu. Um leið erum við að bæta aðbúnað starfsfólks og skapa sterkari innviði sem styðja við sjálfbærari og skilvirkari rekstur til framtíðar,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.