Eimskip, ásamt fleiri fyrirtækjum, stéttarfélögum og lífeyrissjóðum hefur gerst hluthafi í Eyjagöngum. Félagið hefur þegar greitt fyrir hlut sinn og bætist í hóp öflugra bakhjarla sem standa að rannsóknarfasa Eyjaganga.
„Aðkoma Eimskips markar tímamót, en fyrirtækið er burðarás í flutningum á Íslandi“
segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri hjá Eyjagöngum ehf.
Eimskip og Eyjagöng – framtíðartenging sem styrkir Ísland
Allt frá stofnun árið 1914 hefur Eimskip gegnt lykilhlutverki í íslensku samfélagi. Í meira en heila öld hefur félagið tengt Ísland við heiminn, stutt við inn- og útflutning og blómlegt atvinnulíf. Sú saga endurspeglar langtímahugsun, framsýni og ábyrgð og mótar jafnframt sýn Eimskips á framtíðarsamgöngur og innviði landsins.
Tengjum samfélög, sköpum hagsæld
Framtíðarsýn Eimskips er skýr: tengjum samfélög, sköpum hagsæld. Til þess þarf flutningskerfi sem er öruggt, hagkvæmt og fyrirsjáanlegt, því stöðugar tengingar eru forsenda verðmætasköpunar, samkeppnishæfni og góðra lífsgæða um allt land. Vestmannaeyjar eru sterkt dæmi um samfélag sem býr yfir mikilli verðmætasköpun, ekki síst tengdri sjávarútvegi og hafnarstarfsemi. Með Eyjagöngum myndi opnast nýr kafli þar sem Vestmannaeyjar yrðu tengdar beint við þjóðvegakerfið og flutningsleiðin stöðugri og öruggari.
Meiri fyrirsjáanleiki, minni óvissa
Frá sjónarhóli Eimskips snýst verkefnið um að loka rofi í flutningskerfi Íslands. Jarðgöng milli lands og Eyja gætu gert vöruflutninga fyrirsjáanlega allan sólarhringinn, óháð veðri og ytri aðstæðum, og þannig aukið hagkvæmni, dregið úr óvissu og styrkt samkeppnisstöðu íslensks útflutnings. Samhliða yrði til raunhæfur grundvöllur til að nýta enn betur öfluga höfn í Vestmannaeyjum fyrir inn- og útflutning á stærra markaðssvæði, sem gæti aukið flæði, sveigjanleika og þjónustu við fyrirtæki og íbúa.
Myndin með fréttinni er gerð með aðstoð gervigreindar og er ætlað að gefa hugmynd um hvernig göngin í Eyjum gætu litið út.