Eimskip tók á dögunum þátt í fyrirtækjaáskorun Miðstöðvar íslenskra bókmennta sem nefnist Látum bókina ganga. Í verkefninu eru fyrirtæki og stofnanir hvött til að taka höndum saman og halda lestrarhvatningunni Bókaðu stund fyrir bók gangandi og styðja þannig við lestur og lestrarmenningu.
Eimskip fékk áskorun frá Högum. Anton Birkir Sigfússon, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar hjá Högum, afhenti Öglu Huld Þórarinsdóttur, sjálfbærnistjóra Eimskips, farandsbók verkefnisins.
Agla sagði við þetta tilefni:
„Við tökum glöð við bókinni. Eimskip hefur lengi stutt við íslenskar listir og menningu og það er okkur sönn ánægja að taka þátt í þessu flotta verkefni hjá Miðstöð íslenskra bókmennta.“
Að lokinni móttöku bókarinnar skoraði Eimskip á Advania að taka þátt í verkefninu og láta bókina ganga áfram. Þannig heldur áskorunin áfram milli fyrirtækja sem vilja leggja sitt af mörkum til að efla lestur og íslenska lestrarmenningu.
Advania tók áskorun Eimskips og Agla afhenti Hildi Einarsdóttur, forstjóra Advania á Íslandi, bókina sem siglir nú á vit nýrra ævintýra hjá Advania.
Í verkefninu leggur hvert þátttökufyrirtæki fram styrk, skráir sig í farandsbókina og skorar á annað fyrirtæki að gera slíkt hið sama. Bókin verður þannig sýnilegt tákn um samstöðu atvinnulífsins með íslenskri tungu og öflugri lestrarmenningu.