Eimskip á Íslandi og dótturfélagið TVG-Zimsen hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
Árið 2019 setti Eimskip sér það markmið um að hlutfall kvenna yrði að minnsta kosti 40% í efstu stjórnendalögum félagsins árið 2030. Það markmið hefur nú náðst á Íslandi, en jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur, heldur stöðug áframhaldandi vinna, og ætlar félagið eftir sem áður að halda áfram að gera enn betur. Meðal annars með því að ná markmiðinu fyrir samstæðuna á heimsvísu, þar sem hlutfallið er nú 37%, og stuðla áfram að jöfnum tækifærum.
Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskips segir að horfa þurfi til forstöðumanna, deildarstjóra og sérfræðinga í því samhengi, enda komi framtíðarstjórnendur oft úr þeim hópum. Markviss vinna við leiðtogaþróun og arftakaáætlanir hafi sömuleiðis verið sett í gang 2019, með það að markmiði að byggja upp breiðan og fjölbreyttan hóp framtíðarleiðtoga innan félagsins.
„40/60 markmiðið er gott, en það er ekki endapunkturinn. Þetta verður að vera hluti af menningunni okkar. Það er ekki hægt að segja Heyrðu, nú erum við búin að ná þessu, heldur er þetta vinna sem þarf að halda áfram“
segir Vilhelm. „Fjölbreytni snýst svo ekki bara um kyn, heldur viljum við líka stuðla að fjölbreyttri aldurssamsetningu starfsfólks, að ólíkur bakgrunnur þess fái að njóta sín, sem og annað sem fólk kemur með að borðinu.“
Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og ekki síst okkar frábæra starfsfólki, sem hefur lagt sitt að mörkum til að gera þetta að veruleika. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir fyrirtækið, viðskiptavini okkar og samfélagið allt.