Eimskip og TVG-Zimsen í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026
Creditinfo hélt árlega hátíð Framúrskarandi fyrirtækja í Hörpu í vikunni þar sem framúrskarandi árangri íslenskra fyrirtækja var fagnað. Eimskip og TVG-Zimsen eru Framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo 2026 og eru þar með í hópi um 2% íslenskra fyrirtækja sem standast skilyrði viðurkenningarinnar.
Með viðurkenningunni Framúrskarandi fyrirtæki vill Creditinfo vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem sýna fram á framúrskarandi rekstur og traustan fjárhagslegan grundvöll og hvetja til áframhaldandi árangurs í íslensku atvinnulífi.
Eimskip og TVG-Zimsen hlutu auk þess viðurkenningu Keldunnar og Viðskiptablaðsins sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026. Bæði félögin uppfylla þau ströngu skilyrði sem gerð eru til fyrirtækja á listanum. Eimskip hefur verið meðal fyrirmyndarfyrirtækja allt frá upphafi rétt eins og dótturfélagið TVG-Zimsen.
Á myndinni má sjá Margréti Jóhannsdóttur, Eddu Geirsdóttur, Aðalheiði Kærnested frá TVG-Zimsen ásamt Hörpu Hödd framkvæmdastjóra Mannauðs- og samskiptasviðs Eimskips.