Fara á efnissvæði

Nýlega bættist fyrsti rafknúni gámalyftarinn í tækjaflota Eimskips. Kraftvélar, umboðsaðili Kalmar á Íslandi, afhentu gámalyftarann í Sundahöfn í síðustu viku.

20261112 Evgamalyftari EA Lowres 8

Tækið er það fyrsta sinnar tegundar sem afhent er á Íslandi og markar stóran áfanga í áframhaldandi þróun og endurnýjun tækjaflota Eimskips. Nýi rafknúni gámalyftarinn er mikilvægt skref í rafvæðingu starfsemi Eimskips og styður við markmið félagsins um að draga úr losun og ná kolefnishlutleysi árið 2040.

Samkvæmt áætlunum Kalmar losar hefðbundinn dísilknúinn gámalyftari um 132 tonn af CO₂ á ári, en rafknúni gámalyftarinn veldur engri beinni losun CO₂ við notkun.

Guðmundur Ágúst Aðalsteinsson, forstöðumaður hafnarsvæðis Eimskips í Sundahöfn, tók við gámalyftaranum frá Kraftvélum og Agla Huld Þórarinsdóttir, sjálfbærnistjóri Eimskips, klippti á rauða borðann í tilefni afhendingarinnar.

20261112 Evgamalyftari EA Lowres 10
Agla Huld Þórarinsdóttir sjálfbærnistjóri Eimskips klippir á rauða borðann við afhendinguna.