ElbFeeder, þýskt hlutdeildarfélag þar sem Eimskip fer með 48% eignarhlut, hefur gert samning um sölu á 1.710 TEU gámaskipinu MV EF Emma, sem var smíðað árið 2008. Afhending til nýs eiganda er áætluð á fjórða ársfjórðungi 2026. Aðilar hafa komið sér saman um að birta ekki kaupverð eða önnur viðskiptakjör viðskiptanna.
Salan er í samræmi við stefnu ElbFeeder um virka stýringu skipaflotans og kemur í kjölfar sölunnar á gámaskipinu MV EF Emira, sem áður hafði verið tilkynnt um. Líkt og fram kom í uppgjöri Eimskips fyrir annan ársfjórðung 2026 er gert ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif þeirrar sölu falli til á þriðja ársfjórðungi 2026 og hafi jákvæð áhrif afkomu hlutdeildarfélaga.
Salan á EF Emma mun hafa áhrif á uppgjör fjórða ársfjórðungs en samanlögð áhrif viðskiptanna tveggja á afkomu hlutdeildarfélaga verða um 12 milljónir evra á árinu 2026.
Langvarandi samstarf Eimskips við ElbFeeder og meirihlutaeiganda félagsins, Ernst Russ, hefur reynst afar farsælt. Samstarfið sem byggir á gagnkvæmu trausti og góðri samvinnu, hefur stutt við skiparekstur Eimskips og skapað sterkan grunn fyrir þróun skipaflotans.
Styrkur samstarfsins endurspeglast í nýlegum samningum Eimskips um smíði tveggja háþróaðra 2.280 TEU gámaskipa, ásamt tíu ára leigusamningum í gegnum ElbFeeder. Nýju skipin, sem verða afhent síðla árs 2028, munu styðja við framtíðarvöxt Eimskips og efla siglingakerfi félagsins á Norður-Atlantshafi.