Fara á efnissvæði

Ísak Atli Kristjánsson hefur verið ráðinn svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum og tekur við starfinu af Jóhönnu Ósk Halldórsdóttur sem nýlega var ráðin bæjarstjóri Bolungarvíkur.

Ísak er með BA-gráðu í hagfræði frá University of Delaware. Hann hóf störf hjá Eimskip í október 2022 í viðskiptaþjónustu og færði sig síðar yfir í greininga- og verkefnadeild á Innanlandssviði. Frá nóvember 2024 hefur hann starfað sem viðskiptastjóri hjá dótturfélaginu TVG-Zimsen, þar sem hann hefur sinnt fyrirtækjaviðskiptum, tilboðs- og samningagerð og þróun viðskiptatengsla. Áður en Ísak hóf störf hjá Eimskip starfaði hann tvö ár í viðskiptaþjónustu TM.

Í nýju hlutverki mun Ísak leiða starfsemi Eimskips á Vestfjörðum og vinna náið með starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum á svæðinu. Hann kemur inn í starfið með fjölbreytta reynslu úr starfsemi Eimskips og TVG-Zimsen og góða þekkingu á rekstri, greiningum og þjónustu við viðskiptavini.

Ísak er fæddur á Egilsstöðum en er í dag búsettur í Kópavogi. Hann mun á næstu vikum flytja vestur á Ísafjörð ásamt konu sinni og barni.

„Við bjóðum Ísak velkominn í nýtt hlutverk og óskum honum velfarnaðar fyrir Vestan, þar sem reynsla hans af ólíkum störfum innan Eimskips mun án vafa nýtast vel. Á sama tíma þökkum við fráfarandi svæðisstjóra, Jóhönnu Ósk, fyrir frábært starf á undanförnum árum og sendum henni hamingjuóskir með bæjarstjórastarfið sem hún tekur nú við í Bolungarvík, fyrst allra kvenna“ segir Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir framkvæmdastjóri Innanlandssviðs Eimskips.