Fara á efnissvæði

Nýtt samstarfsfélag hefur það að markmiði að efla tengsl alþjóðlegra flugfélaga við íslensk inn- og útflutningsfyrirtæki og flutningsmiðlara.

TVG-Zimsen, dótturfélag Eimskips, og Kales Group B.V., alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í umboðsþjónustu fyrir flugfélög, hafa stofnað Kales Iceland. Félagið er sameiginlegt verkefni beggja aðila og mun starfa sem sjálfstæður umboðsaðili í sölu og þjónustu (GSSA) fraktflutninga fyrir flugfélög á íslenskum markaði.

Þjónusta sniðin að íslenskum markaði

Kales Iceland mun veita alþjóðlegum flugfélögum sölu- og rekstarþjónustu fyrir fraktflutninga til og frá Íslandi. Fyrirtækið mun styðja flugfélög við að byggja upp vöruflutningastarfsemi sína með því að tengja þau við flutningsmiðlara, útflytjendur og innflytjendur á Íslandi.

„Stofnun Kales Iceland markar spennandi tímamót í umboðsþjónustu fyrir flugfélög á Íslandi og opnar á ný tækifæri. Með því að tengja íslensk fyrirtæki við alþjóðlegt net flugfélaga viljum við stuðla að auknum viðskiptatækifærum og betri tengingu við erlenda markaði, bæði fyrir inn- og útflutningsfyrirtæki“ segir Raffaele Manna, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.

Alþjóðleg reynsla og staðbundin markaðsþekking

Kales Group býr yfir víðtækri reynslu af umboðsþjónustu fyrir flugfélög og öflugu alþjóðlegu tengslaneti. TVG-Zimsen leggur til þekkingu á íslenskum markaði og sterk viðskiptatengsl.

„Með því að sameina alþjóðlega reynslu og tengslanet Kales og þekkingu TVG-Zimsen á íslenskum markaði skapast ný tækifæri fyrir flugfélög á íslenskum flugfraktmarkaði. Markmið okkar er að byggja upp faglegt og sjálfstætt fyrirtæki með skýra viðskiptalega sýn, sem skapar verðmæti fyrir þau flugfélög sem við störfum fyrir og viðskiptavini á íslenskum markaði“ segir Sebastiaan Scholte, forstjóri Kales Group B.V.

Um TVG-Zimsen

TVG-Zimsen er dótturfélag Eimskips og veitir alhliða flutningsmiðlunar- og flutningaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið býr yfir víðtækri þekkingu á íslenskum markaði og sterkum viðskiptatengslum, auk þess að njóta góðs af þjónustu og innviðum Eimskips.

Um Kales Group

Kales Group B.V. er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í umboðsþjónustu fyrir flugfélög (GSSA). Fyrirtækið var stofnað árið 1994 og hefur byggt upp alþjóðlegt tengslanet með starfsemi í 38 löndum og 79 skrifstofum. Kales er umboðsaðili fyrir yfir 70 flugfélög á alþjóðlegum mörkuðum.

Nánari upplýsingar: Sales.IS@kales.com

000 Kales Iceland Mynd 1 Nota
Á myndinni má sjá frá vinstri: Raffaele Manna framkvæmdastjóri TVG-Zimsen, Adam Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Kales Group, Sebastian Scholte forstjóri Kales Group, Björn Einarsson framkvæmdastjóri sölu og þjónustustýringar hjá Eimskip, Jannis Moraitis, forstöðumaður flug- og sjófraktar hjá TVG-Zimsen.