Kales Iceland, nýtt samstarfsfélag TVG-Zimsen, dótturfélags Eimskips, og Kales Group B.V., hefur verið valið umboðsaðili flugfélagsins Air China á Íslandi og ber ábyrgð á viðskiptaþróun og stuðningi við fraktstarfsemi flugfélagsins hér á landi.
Ný tækifæri í viðskiptum milli Íslands og Kína
Air China undirbýr nýtt áætlunarflug milli Peking og Keflavíkur með viðkomu í Kaupmannahöfn frá 26. október 2026. Flogið verður þrisvar í viku með Airbus A330-300 flugvélum sem flytja bæði farþega og frakt.
Nýja flugtengingin skapar tækifæri fyrir fyrirtæki í viðskiptum milli Íslands og Kína. Íslenskir útflytjendur, sérstaklega þeir sem flytja ferskt sjávarfang og aðrar tímanæmar vörur, fá nýja flutningsleið til viðskiptavina á kínverska markaðnum. Á sama tíma njóta innflytjendur góðs af nýrri reglubundinni frakttengingu og auknu aðgengi að vörum og birgjum í Kína.
„Hjá KALES erum við afar ánægð með að efla enn frekar hið þegar öfluga samstarf okkar við Air China á Íslandi. Áframhaldandi samstarf endurspeglar sameiginlega áherslu okkar á að veita hágæðaþjónustu, byggja upp langtímasambönd og styðja við starfsemi Air China á íslenskum markaði. Við hlökkum til að byggja áfram á farsælu samstarfi okkar og styrkja það enn frekar á komandi árum,“ segir Adam Gunnarsson, varaforseti hjá Kales Group.
„Það er spennandi að sjá Ísland og Kína tengjast nánari böndum. Bein flugtenging skapar tækifæri sem ná langt út fyrir flugið sjálft og styrkir viðskipti, tengsl og samstarf milli landanna tveggja. Við erum stolt af því að Kales Iceland geti lagt sitt af mörkum til að byggja ofan á þessi tækifæri,“ segir Raffaele Manna, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.
Kales Iceland mun veita flugfélögum sem starfa á íslenskum markaði þjónustu sem almennur sölu- og þjónustuumboðsaðili (General Sales and Service Agent).
Nánari upplýsingar: Sales.IS@kales.com