Mynd: Kranar Eimskips á Mjóeyrarhöfn, Jötunn og Freyja afgreiða skipið Dettifoss fyrr á árinu.
Eimskip hefur fjárfest í nýjum rafdrifnum gámakrana sem ætlaður er til notkunar í Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði. Kraninn er væntanlegur til landsins haustið 2027.
Hann er frá framleiðandanum Konecranes Gottwald og verður 11. krani félagsins af þeirri tegund. Módelið, ESP.8 er sama gerð og nýjustu kranar félagsins í Sundahöfn, Alda og Bára, sem komu til landsins 2022 og 2024 og hafa reynst félaginu mjög vel.
Þessi fjárfesting markar enn eitt mikilvægt skref í nútímavæðingu hafnarinnviða Eimskips og eflingu starfseminnar um allt land. Þegar nýi ESP.8-kraninn hefur verið tekinn í notkun verður Jötunn fluttur frá Reyðarfirði til Grundartanga, þar sem hann mun þjónusta skipaafgreiðslu Eimskips á svæðinu.
ESP.8 er nýjasta kynslóð rafdrifinna færanlegra hafnarkrana, hönnuð til að annast meðhöndlun gáma, ýmiss konar farms og lausavöru með skilvirkum hætti. Með allt að 125 tonna lyftigetu og 54 metra vinnuradíus veitir kraninn þann sveigjanleika og þau afköst sem þarf til að mæta þörfum viðskiptavina, bæði nú og til framtíðar.
Pétur F. Jónsson, svæðisstjóri Eimskips á Austurlandi segir nýja kranann stórt skref fyrir starfsemina á svæðinu:
„Kranarnir eru algjör lykilbúnaður í starfseminni okkar. Núverandi kranar eru á þeim stað í líftímanum að viðhaldsþörfin er orðin mikil og kostnaðarsöm og hefur í auknum mæli áhrif á daglegan rekstur. Freyja hefur verið hjá okkur frá 2015 og er komin í um 33 þúsund vinnustundir, sem gefur góða mynd af þeirri miklu notkun sem er á krönunum okkar. Jötunn er árgerð 2007 og kom til okkar frá Færeyjum árið 2023.
Með nýjum rafknúnum krana aukum við áreiðanleika starfseminnar verulega, lækkum rekstrarkostnað og tökum um leið stórt og mikilvægt skref í áframhaldandi rafvæðingu starfsemi Eimskips á Mjóeyrarhöfn."
Verkefnið styður langtímastefnu Eimskips um fjárfestingu í nútímalegum, sjálfbærum og áreiðanlegum tækjabúnaði, samhliða því að veita viðskiptavinum okkar áfram örugga og skilvirka þjónustu um allt land.