Fara á efnissvæði

Raffaele Manna hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TVG-Zimsen, dótturfyrirtækis Eimskip. Hann tekur við starfinu af Elísu Dögg Moraitis Björnsdóttur, sem nýverið var ráðin framkvæmdastjóri Innanlandssviðs Eimskips. 

Raffaele hefur starfað innan samstæðu Eimskips um árabil og gegnt fjölbreyttum stjórnunar- og þróunarhlutverkum. Undanfarin ár hefur hann stýrt Eimskip Liner Partner Network og borið ábyrgð á þróun samstarfs, þjónustu- og flutningslausna á mörkuðum víða um heim.

„Raffaele hefur síðustu ár verið lykilmaður í starfsemi okkar og gegnt mikilvægu hlutverki í þróun alþjóðlegs samstarfs og þjónustulausna. Hann býr yfir djúpri þekkingu á starfseminni, sterkri viðskiptasýn og mikilli reynslu af rekstri og samstarfi á alþjóðlegum vettvangi. Ég er sannfærður um að hann muni leiða TVG-Zimsen áfram af styrk, áreiðanleika og metnaði og byggja áfram á þeim trausta grunni sem félagið stendur á,“ segir Björn Einarsson, stjórnarformaður TVG-Zimsen og framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip.

Víðtæk alþjóðleg reynsla

Áður en hann hóf störf hjá Eimskip starfaði Raffaele hjá TVG-Zimsen í Reykjavík og Rotterdam, þar sem hann gegndi meðal annars störfum í þjónustu og sölu og bar síðar ábyrgð á alþjóðlegu samstarfi fyrirtækisins. Þar öðlaðist hann víðtæka reynslu af rekstri og þjónustu og þróaði með sér sterkan skilning á íslenskum markaði jafnt sem alþjóðlegu flutningsumhverfi.

Raffaele er fæddur á Ítalíu og með gráðu í alþjóðastjórnmálum og -samskiptum frá Università degli Studi di Milano auk diplómagráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur um 15 ára reynslu af flutningsmiðlun og flug- og skipaflutningum, þar sem hann hefur unnið með samstarfsaðilum um allan heim, stýrt flóknum flutningakeðjum og þróað hagkvæmar flutningslausnir. Hann er fjöltyngdur og vanur störfum í alþjóðlegu og fjölmenningarlegu umhverfi. 

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka til að taka við þessu hlutverki. TVG-Zimsen býr yfir öflugu teymi og sterkri stöðu á markaði og það verður spennandi að halda áfram að þróa starfsemina í nánu samstarfi við starfsfólk og viðskiptavini. Skilvirkar og áreiðanlegar flutningsleiðir til og frá Íslandi eru mikilvæg forsenda hagsældar og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Ég mun byggja á áratuga sterkri forystu og þjónustu TVG-Zimsen og leggja áherslu á að þróa áfram öflugt og áreiðanlegt alþjóðlegt net sem styður við viðskiptavini okkar og íslenskt samfélag,“ segir Raffaele Manna, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.