TVG-Zimsen ehf. og Cargo Express ehf. hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum samruna sem fólst í kaupum TVG-Zimsen á öllu hlutafé í Cargo Express ehf. sem tilkynnt var um 6. mars 2026. Viðskiptin voru háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en vegna óvissu um afstöðu eftirlitsins til samrunans hafa aðilar ákveðið að falla frá viðskiptunum. Samrunatilkynning sem var til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur verið afturkölluð.