Fara á efnissvæði

Vilhjálmur Kári Haraldsson tekur við nýju hlutverki hjá Eimskip sem Global HR & Communication Coordinator. Hann snýr þar með aftur til Mannauðs- og samskiptasviðs eftir að hafa síðast gegnt starfi mannauðsstjóra Eimskips í Hollandi. Vilhjálmur hóf störf hjá Eimskip árið 2021 sem sérfræðingur í mannauðsmálum og tók síðar við starfi mannauðsstjóra Eimskips á Íslandi.

Í nýju hlutverki mun Vilhjálmur starfa þvert á félagið, með sérstakri áherslu á erlendar skrifstofur Eimskips. Hann mun styðja við málaflokka og lykilverkefni Mannauðs- og samskiptasviðs, en undir sviðið heyra mannauðs-, launa- og kjaramál, menning og fræðsla, samskipti og markaðsmál.

Vilhjálmur mun vinna náið með stjórnendum og teymum á erlendum skrifstofum, með áherslu á samstarf og samræmingu milli landa, miðlun þekkingar og innleiðingu sameiginlegra verkefna og lausna. Hann mun jafnframt vinna að því að greina tækifæri til einföldunar, sjálfvirknivæðingar og betri nýtingar kerfa og verkfæra.

„Vilhjálmur þekkir Eimskip og starfsemi félagsins mjög vel og það er sérstaklega ánægjulegt að fá hann aftur til starfa á Mannauðs- og samskiptasviði. Hann hefur öðlast verðmæta reynslu í ólíkum hlutverkum innan félagsins, bæði hér heima og erlendis, sem mun nýtast vel í þessu nýja hlutverki. Við viljum nýta betur þá þekkingu og reynslu sem býr víða innan Eimskips og skapa sterkari tengingar milli landa og teyma. Þar tel ég að Vilhjálmur geti lagt mikið af mörkum,“ segir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs Eimskips.

Vilhjálmur er með B.Ed. gráðu í kennarafræðum og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og býr yfir um 20 ára reynslu af mannauðsstörfum hjá fjölbreyttum fyrirtækjum og stofnunum. Hann hefur jafnframt starfað sem knattspyrnuþjálfari í um 30 ár og er með UEFA A þjálfararéttindi.

Vilhjálmur segir:

„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki og þeim tækifærum sem því fylgja. Eftir að hafa starfað í ólíkum hlutverkum hjá Eimskip, bæði á Íslandi og í Hollandi, hef ég séð hversu mikilvægt það er að tengja saman fólk, þekkingu og verkefni þvert á lönd.“