Fara á efnissvæði

Eimskip og Kiwanis hafa nú lokið við að afhenda nýja reiðhjólahjálma til allra barna í 1. bekk árið 2026. Er þetta í 22. sinn sem félögin standa saman að verkefninu, en í ár eru hjálmarnir 4.755 talsins og voru afhentir á 59 stöðum um allt land.

Verkefnið hófst upphaflega 1991 á Akureyri en Jóhannes Steingrímsson formaður hjálmanefndar Kiwanis segir verkefnið hafa gjörbreyst með aðkomu Eimskips 2004. Þá stækkaði það og varð að landsverkefni og taka nú allir Kiwanisklúbbar landsins þátt.

„Það er ekkert smáræði sem Eimskip gerir fyrir okkur og öll börnin með þessu“

Á þeim 22 árum sem þetta samstarf Eimskips og Kiwanis hefur staðið yfir hafa um 120 þúsund börn fengið hjálm að gjöf og mörg ungmenni muna eftir tilfinningunni að fá hjálminn í hendurnar. Markmið verkefnisins hefur frá upphafi verið að auka umferðaröryggi en öryggismálin eru samofin starfsemi Eimskips enda starfsemin fjölbreytt. 

Ásamt hjálminum fá börnin buff og endurskinsmerki. Mikilvægt er að hjálmurinn sé rétt stilltur á höfði barnsins og eru foreldrar hvattir til að kynna sér leiðbeiningar á vefsíðu félagsins, en þar má lesa allt um hvernig hjálmarnir eru rétt stilltir.