Umhverfismarkmið
Árið 1991 varð Eimskip eitt af fyrstu fyrirtækjunum á Íslandi til að setja sér umhverfisstefnu. Síðan þá hafa áskoranir á þessu sviði þróast hratt og umhverfismál eru sérstak mikilvæg fyrir heiminn og komandi kynslóð.
Eimskip hefur sett sér eftirfarandi umhverfismarkmið:
Greina og hafa stjórn á hugsanlegri umhverfisáhættu af rekstri félagsins
Stjórna starfsemi félagsins samkvæmt gildandi lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum
Endurvinna og lágmarka úrgang
Bæta orkunýtni skipaflota félagsins
Bæta orkunýtni flutningabíla og annars búnaðar félagsins
Draga úr sóun og bæta orkunotkun í húsnæði félagsins
Setja árleg markmið um umhverfismál
Veita starfsmönnum og viðskiptavinum reglulega þjálfun í umhverfismálum